Persónuvernd
Hjá Tveimur heimilum er trúnaður og virðing fyrir einkalífi grunnur að allri vinnu. Hér kemur fram hvaða persónuupplýsingar verða til þegar þú hefur samband, bókar tíma eða skráir þig á námskeið, hvernig þær eru notaðar og hvaða rétt þú átt.
Síðast uppfært 17. október 2026.
Ábyrgð og samskipti
Tvö heimili er rekið af Ragnheiði Láru Guðrúnardóttur, félagsráðgjafa M.A., sem er ábyrgðaraðili að vinnslu persónuupplýsinga vegna starfseminnar.
Tvö heimili, Hellisgata 29, 220 Hafnarfirði
Netfang: tvoheimili@tvoheimili.is
Sími: 694-3505
Upplýsingar sem þú veitir
Persónuupplýsingar verða aðeins til þegar þú sjálf/ur hefur samband eða nýtir þjónustuna:
- Fyrirspurnarform: nafn, netfang, símanúmer og skilaboðin sem þú sendir.
- Skráning á námskeið: þær upplýsingar sem beðið er um í skráningarforminu.
- Bókanir: tímabókanir fara fram í bókunarkerfi Noona, sem tekur við tengiliðaupplýsingum þínum og upplýsingum um bókaðan tíma og sendir staðfestingu.
- Tölvupóstur og símtöl: þær upplýsingar sem þú velur að deila.
Vinsamlegast takmarkaðu fyrstu fyrirspurn við það sem þurfa þarf til að hafa samband við þig. Ekki er þörf á ítarlegum upplýsingum um börn, heilsufar eða viðkvæm fjölskyldumál í vefformi eða tölvupósti – það er rætt í viðtali.
Trúnaður í viðtölum og þjónustu
Í ráðgjöf, sáttamiðlun og viðtölum við börn geta komið fram viðkvæmar upplýsingar um fjölskylduhagi, líðan og börn. Með þær er farið í trúnaði og aðeins skráð það sem nauðsynlegt er vegna þjónustunnar.
Upplýsingum er ekki miðlað til annarra nema með samþykki þínu eða þegar lög skylda til þess, til dæmis vegna tilkynningarskyldu samkvæmt barnaverndarlögum.
Tilgangur og heimildir
Upplýsingarnar eru notaðar til að svara erindum, undirbúa og veita umbeðna þjónustu og halda utan um bókanir og skráningar.
Vinnsla vegna fyrirspurna, bókana og þjónustu byggir á því að hún sé nauðsynleg til að verða við beiðni þinni og veita þjónustuna, eða á lagaskyldu þar sem við á. Upplýsingar eru aldrei seldar eða notaðar í auglýsingaskyni.
Varðveisla og eyðing
Upplýsingar eru varðveittar á meðan þörf er á þeim vegna samskipta og þjónustu. Fyrirspurnum úr vefformi og tölvupósti er eytt þegar eitt ár er liðið frá síðustu samskiptum, nema þær tengist áframhaldandi þjónustu eða lög krefjist lengri varðveislu, til dæmis bókhaldsgögn.
Kerfi og þjónustuaðilar
Vefurinn er hýstur hjá Hostinger. Sendingar úr vefformum eru vistaðar í vefkerfinu (WordPress) og sendar í tölvupósti til Tveggja heimila. Bókanir fara fram í gegnum Noona, sem vinnur með upplýsingarnar samkvæmt eigin persónuverndarstefnu. Upplýsingar geta því verið í fleiri en einu kerfi á meðan erindi þitt er afgreitt.
Vefkökur og vefgreining
Vefurinn notar Independent Analytics til að telja heimsóknir og fá yfirsýn yfir notkun síðunnar. Þær tölur eru teknar saman án vafrakaka og gögnin eru geymd í vefkerfinu sjálfu en ekki send til þriðja aðila. IP-tölur eru ekki vistaðar með sendingum úr vefformum.
Engar auglýsinga- eða markaðskökur eru notaðar. Bókunarformið á síðunni Bóka tíma er birt frá Noona og getur notað eigin kökur eða geymslu sem þarf til að bókunin virki. Tenglar á Facebook og Instagram eru venjulegir tenglar og hlaða engu efni frá þeim miðlum. WordPress notar einnig nauðsynlegar innskráningarkökur fyrir stjórnendur vefsins.
Réttindi þín
Þú getur óskað eftir upplýsingum um vinnslu persónuupplýsinga þinna, aðgangi að þeim og leiðréttingu rangra upplýsinga. Að uppfylltum skilyrðum getur þú einnig óskað eftir eyðingu, takmörkun vinnslu eða flutningi gagna og andmælt vinnslu. Byggi vinnsla á samþykki getur þú dregið það til baka án þess að það hafi áhrif á lögmæti fyrri vinnslu.
Beiðnir má senda á tvoheimili@tvoheimili.is. Almennt er svarað innan eins mánaðar. Þú getur einnig lagt fram kvörtun hjá Persónuvernd.
Breytingar
Stefna þessi getur tekið breytingum, til dæmis ef nýjum þjónustum eða kerfum er bætt við. Nýjasta útgáfa er alltaf aðgengileg á þessari síðu.