Þjónusta í boði
Tvö heimili býður upp á ráðgjöf, sáttamiðlun og stuðning fyrir foreldra og börn sem búa á tveimur heimilum. Í allri vinnu eru hagsmunir barnsins hafðir að leiðarljósi og áhersla lögð á að foreldrar finni saman lausnir sem þeir eru sáttir við.

Hvernig getum við aðstoðað?
Ertu að slíta samvistum? Ráðgjöf
Ágreiningur um umgengni eða forsjá? Sáttamiðlun
Þarf barnið stuðning? Þjónusta við börn
Sáttamiðlun
Sáttamiðlun er aðferð til lausnar ágreinings sem aðilar taka sjálfviljugir þátt í með hjálp sáttamiðlara. Markmiðið er að finna lausn sem foreldrar eru sáttir við og sem setur hagsmuni barnsins í forgang.
Viðtal frá 22.000 kr.
Ráðgjöf
Ráðgjöf fyrir foreldra sem eru að slíta samvistum eða vilja koma foreldrasamstarfi sínu í betri farveg, til dæmis um samskipti, umgengni, forsjá og lögheimili eða gerð sáttmála um foreldrasamstarf.
Viðtal frá 22.000 kr.
Þjónusta við börn
Hlýleg og fagleg nálgun þar sem hagsmunir barnsins eru hafðir að leiðarljósi. Ráðgjafa- og stuðningsviðtöl fyrir börn og viðtöl við börn sem hluti af sáttameðferð.
Viðtal frá 22.000 kr.
Önnur þjónusta
Sérfræðiálit, eftirlit með umgengni og tengslabrú, sem er sérhæfð aðstoð við að koma aftur á tengslum foreldris og barns eftir rof á umgengni.
Eftirlit með umgengni 22.000 kr. á klst.
Ekki viss hvaða þjónusta hentar?
Hafðu samband og við förum saman yfir stöðuna og finnum þá leið sem hentar þinni fjölskyldu best.