Starfsferill og menntun
Ragnheiður hefur víðtæka reynslu af því að starfa með börnum og fjölskyldum.
Menntun:
- 2022 Yin Yoga og Yoga Nidra kennaranám
- 2022 Forensic Interviewing of Children Training hjá National Children´s Advocacy Center
- 2021 – 2022 Attachment, Neurodevelopment Psychopathology (ANP) hjá Family relations institute
- 2021 Child Inclusive Mediation And Counseling: Child Consultant Course
Fyrri störf:
- Deildarstjóri á stuðningsheimili Reykjavíkurborgar fyrir ungt fólk með fjölþættan vanda.
- Uppeldis- og meðferðarfulltrúi á skammtímaheimili unglinga hjá barnavernd Reykjavíkur.
- Forstöðumaður Frístundarheimilis með áherslu á útinám og barnalýðræði.
- Félagsráðgjafi í þjónustumiðstöð Breiðholts.
Fagleg nálgun
Ragnheiður hefur lengi brunnið fyrir málefnum barna sem búa á tveimur heimilum. Hún upplifði af eigin raun að vera barn í umgengni og er sjálf móðir barns sem dvelur aðra hvora viku hjá foreldrum sínum. Síðustu árin hefur hún leitast við að afla sér þekkingar á málefnum barna sem eiga foreldra sem búa ekki saman, lesið rannsóknir, bækur og sótt ráðstefnur og námskeið bæði hérlendis og erlendis.
Ragnheiður er jákvæð, bjartsýn og einlæg að eðlisfari og endurspeglast það viðhorf í faglegri nálgun í starfi. Ragnheiður leggur áherslu á að nálgast fólk af hlýju og virðingu, með styrkleika fólks af leiðarljósi og getu þess sjálfs til að takast á við eigin vandamál og áskorarnir. Í uppeldi eigin barna viðhefst Ragnheiður virðingaríkt tengslauppeldi og birtist sú hugmyndafræði einnig í störfum hennar þar sem unnið er með meðvitaða foreldrasamvinnu (e. mindful/conscious coparenting).
„Það er von mín að sá sem hingað leitar upplifir sig kominn á réttan stað. Ég þekki það sjálf að standa í þessum sporum bæði sem foreldri og barn og vildi óska þess að ég hefði haft aðgang að vettvangi sem þessum. Ekki hika við að hafa samband, vonandi get ég lagt mitt á vogarskálarnar fyrir farsæla niðurstöðu.“